námskeiðin
námskeiðslýsing
umóknir
dagskrá

NÁMSKEIÐSLÝSINGAR

Byrjendanámskeið
eru 11 klst löng. Í upphaf námskeiðs er haldin hálftíma fyrirlestur um markmið systkinasmiðjunar fyrir foreldra þannig að þau fái innsýn inn í það sem við gerum á námskeiðinu. (sjá bækling um námskeið systkinasmiðjunar, markmið hennar og afurð). Á byrjendanámskeiði er áherslan lögð á að leysa ákveðin verkefni sem gerir börnin betur í stakk búin að tjá sig um systkini sitt og líðan sína þannig að þau séu sátt við hlutskipti sitt. Í lok hvers námskeiðs eru afhent  viðurkenningarskjöl.

Framhaldsnámskeið
hófust í október 2001. Þau eru ætluð öllum sem hafa verið á byrjendanámskeiði systkinasmiðjunar. Einn laugardag í mánuði, yfir vetrarmánuðina, er opið hús og þar gefst krökkunum tækifæri til að hittast aftur og hafa gaman. Í opnu húsi er megin áhersla lögð á hópastarf. Auk hugmynda frá börnunum sjálfum erum við að vinna að eftirfarandi:

Vinna að heimasíðu Systkinasmiðjunar - hvað vilja þau hafa inni á henni? Þau byggji ofna á grunninn sem við erum búnar að vinna að.

Gefa út fréttabréf sem sent er til allra systkina sem hafa tekið þátt á námskeiðum Systkinasmiðjunar með upplýsingum um hvað er að gerast í framhaldshópnum og öðrum áhugaverðum fréttum.

Fara í Keilu og jafnvel sund.

Sameiginlegt grill í vor með foreldrum og systkinum þeirra.

Og margt margt fleira.

Önnur námskeið
Námskeið fyrir börn og unglinga sem eiga veika eða fatlaða foreldra og foreldra með MS-sjúkdóminn, hafa verið starfrækt á vegum Systkinasmiðjunnar en eru ekki fastur liður. Einnig er fyrirhugað að bjóða upp á önnur sérhæfð námskeið.

Fræðslunámskeið
Námskeið ætluð ýmsum fagstéttum sem koma að þjónustu við fjölskyldur fatlaðra barna námskeiðin eru 2- 4 klst löng.

NÁMSKEIÐ