SMIÐJAN

 

2001
2002
2003
2004
2005
2006
2007
2008


HÓPAR

2001

2002

2003

2004

2005

2006

2007
Sögur2003
______________________________________________________

Frá námskeiði í febrúar 2003!
---------------------------------------------------------


Alfreð sem skrifar næstu sögu finnst skemmtilegast að fara á skíði og í sund.
Ég heiti Alfreð og systkinið mitt heitir Gumni og hann er 16 ára. Honum finnst skemmtilegast að leika sér með byssur og dót. Hann var alltaf einu sinni að drekka gos og uppáhalds gosið hans er Mountain Dew. Honum finnst leiðinlegt að fara í Hólaber.
---------------------------------------------------------

Benni er úr Reykjavík og finnst skemmtilegast í fótbolta.
Ég er Benni og systkinið mitt heitir AAron. Hann er skemmtilegur og ég leik við hann í boltaleik og hjálpa honum mikið. Hann er 3ja að verða 4ra á þessu ári. Bróðir minn er fatlaður en ég veit ekki hvernig hann er fatlaður og hann er ekki matvandur. Ég held að besti maturinn hanns er hakk og spagetti og hann er besti bróðir í heimi.
---------------------------------------------------------

Ég heiti Ingibjörg Erla og ég er 12 ára gömul. Ég á litla systur sem heitir Júlía. Hún er 3ja ára, að verða 4ra. Hún er með CP, það er fötlun í líkama. Hún getur ekki t.d. setið sjálf, staðið eða labbað, en hún er dugleg að tala og það er skemmtilegt að leika við hana. Hún horfir mikið á spólur en stundum lesum við saman. Einn af uppáhaldsmatnum okkar beggja er pizza og gos. Hún getur verið pirrandi en ég myndi ekki vilja skipta á henni og öðru heilbrigðu barni.

---------------------------------------------------------

Lísa er 10 ára og býr í Breiðholti.
Hæ ég heiti Lísa og bróðir minn heitir Steini. Hann er 17 ára að verða 18. Hann er kominn með bílpróf og hann æfir keilu. Hann fer einu sinni í viku upp á Kjalanes og er frekar stríðinn og hann er eiginlega alldrei heima. Hann er alltaf hjá vini sínum. Honum finnst gaman að keyra og finnst gaman í skólanum Hann er í Iðnskólanum.

---------------------------------------------------------

Þessa sögu skrifaði Ívar Örn og hann á heima í Reykjavík.
Systkini mitt heitir Ragnar. Ég hitti hann aðra hvora helgi og hann býr hjá pabba mínum. Honum finnst gaman að leika sér í Nintendo tölvunni sinni í Marío leikjum. Besta vinkona hans heitir Ásdís. Hann getur æst sig ef hann fær ekki það sem hann vill.
---------------------------------------------------------

Hún Guðrún Margrét skrifaði fyrstu söguna og heitir hún "Nokkur ár með Aaroni"Hæ, ég heiti Guðrún og ég er 11 ára. Ég á heima í Reykjavík og mér finnst gaman að eiga bróður eins og Aaron. Eftir nokkur ár er Aaron orðin betri í að segja eitthvað, en kann samt ekki að tala. Hann kann að segja mamma og húfa en ber orðið húfa þannig að það heyrist húa. Hann stendur með því að halda sér í eitthvað en núna meðjafnvægi. Hann er farinn að tæta í öllu eins og hann sé eins árs en er þó 3ja ára. Þeir sem eru seinþroska geta ekki hugsað nógu vel. Hann er frekar seinn að því að labba en skríður þó í staðinn. En þótt hann nái ekki að labba í sumar þá þykir mér samt vænt um hann. Þett er það sem mér finnst um Aaron í dag.
---------------------------------------------------------

Hér er saga eftir Gunnar Má sem á heima í Reykjavík og þykir gaman í sundi og handbolta.Ég heiti Gunnar Már og systkinið mitt heitir Ólöf Þorgjörg. Ég veit ekki hvernig hún er fötluð. Hún kann ekki að tala en samt getum við leikið okkur saman og hlæjum. Okkur þykir báðum nammi gott og við erum systkini.
---------------------------------------------------------

Stefanía er 12 ára og á heima í Kópavoginum og hún á fatlaðann tvíburabróður.
Hæ ég heiti Stefanía og systkinið mitt heitir Ragnar. Hann er seinþroska. Við erum tvíburar. Þegar hann var með mér í skólanum þá var hann alltaf einn og mér fannst oft gott að sjá hann í frímínútum. Ég bað um að hann yrði ekki settur í sama bekk og ég út af því að annars yrði alltaf annar sérkennslukennari í stofunni að hjálpa honum. Mamma og pabbi sóttu um að hann fengi að fara í Öskjuhlíðarskóla og hann fékk það. Nú líður honum og mér miklu betur andlega og félagslega. Þegar Ragnar verður kanski 20 ára þá held ég og vona að hann eigi eftir að ná bílprófi. Ég vona samt mest að hann eigi eftir að vera hamingjusamur og eigi eftir að giftast góðri konu. Samt held ég að hann eigi aldrei eftir að eiga börn.
---------------------------------------------------------

Iðunn skrifar næstu sögu og hún á bróðir sem er með S.M.A.
Ég heiti Iðunn og fatlaða systkinið mitt heitir Þorsteinn Sturla og er kallaður Stulli. Bróðir minn er með S.M.A. Það er taugasjúkdómur og vöðvahrörnunarsjúkdómur. Stulli er 3ja ára og hann er mjög gáfaður miðað við aldur. Hann lærði að tala 1 árs og var orðinn samræðufær um 2ja ára. Hann er mjög þrjóskur og frekur og fær oftast það sem hann vill en mér þykir samt vænt um hann. Við eigum einn annan bróður sem heitir Steingrímur. Stulli og Steini (Steingrímur er kallaður Steini) leika eiginlega alltaf saman og eru bestu vinir. Stulli er í leikskóla en ég og Steini erum í Salaskóla. Stulli þarf að nota hjólastól vegna sjúkdómsins og hann er í skjúkraþjálfun. Honum þykir skemmtilegast að leika sér með afríkudýrin. Við eigum heima í Kópavogi.

---------------------------------------------------------

Árni Hlynur á bróðir sem er fatlaður og er eldri en hann.
Ég heiti Árni Hlynur og bróðir minn heitir Kristján. Bróðir minn er fatlaður og hann talar hægt og gerir margt hægar en við. Hann er 13 ára og ég er 8 ára að verða 9. Hann er í Öskjuhlíðarskóla og ég er í Selásskóla. Bróður mínum þykir margt skemmtilegt. Hann æfir sund og ég líka. Honum þykir matur góður eins og mér. Mér þykir vænt um hann.
---------------------------------------------------------

Ég heiti Andrea og bróðir minn heitir Björn Friðrik og er 11 ára. Honum finnst gaman að stríða mér en mér finnst það leiðinlegt. Ég er 8 ára að verða 9 í apríl en bróðir minn verður ekki með í veislunni. Hann verður 12 ára í nóvember þá verður veisla með fjölskyldunni. Hann er glaður finnst mér og hann er mjög góður.
---------------------------------------------------------