



HÓPAR
| ______________________________________________________ |
--------------------------------------------------------- Heiða - 11.apríl 2004 Bróðir minn heitir Bjarni. Einu sinni kallaði hann sig (eða reyndar allir kölluðu hann) “Bjarna cool” og svo var það líka fyrir stuttu “the real one Bjarni” en núna er það hans fulla nafn “Bjarni Haraldur Sigfússon”. Hann er ofboðslega mikið í tölvu, hann er á nokkrum spjallrásum sem heita: ICQ, msn messenger, yahoo messenger og jazz 2 online. Besti vinur hans býr úti í Bandaríkjunum, hann kynntist honum á spjallrásum og hann er alltaf kallaður Labradkid en hann heitir í alvörunni Matthew. Hann er búinn að hjálpa mér að skrá mig á “jazz 2 online”. “jazz to online” er spjallrás og margt fleira á einni síðu. Þetta er gert í tengslum við “jazz jackrabbit (2)” sem að er tölvuleikur með tveimur kanínum sem heita “Jazz jackrabbit” og Spaz jackrabbit. En ég ætti kannski að skrifa um eitthvað annað en bara spjallrásir og tölvuleiki. Hann er núna með á heilanum að segja “hvað er einn plús einn í öðru veldi” það er rosa pirrandi og líka “you suck”, og svo lýsti hann einu sinni svolitlu sem hlýtur að vera rosalega pirrandi þá sér hann svona hugsun sem að hann vill ekki hugsa um en það kemur bara, þá sér hann fyrir sér að Bogi Ágústsson er að segja fréttir og segir “og þeir notuðu vopn eins og þeim þráver” og segir þennan frasa aftur og aftur. Það er rosalega pirrandi þegar hann er ekki í réttu stuði og vinkonur mínar koma. Það eru t.d tvær stelpur sem að ég þekki og þær láta eins og Bjarni sé eitthvað hættulegur eða eitthvað, og einusinni hrækti hann á vinkonu mína. En það er eitt sem að ég ætla að segja að lokum, það er ein stelpa sem að var einu sinni besta vinkona mín, hún heitir Kamilla og var alltaf ótrúlega góð við Bjarna, hann var með æði fyrir pókemon og vildi spila pókemon-spilið endalaust en ég nennti því ekki þannig að Kamilla fór bara að spila með honum pókemon. Svo bíður hann alltaf öllum bekknum í afmælið sitt og boðskortin eru alltaf eins og heil ritgerð, og svo bauð hann Kamillu í afmælið sitt og skrifaði á boðskortið “Kamilla kemur í afmælið”, og það var enginn sem vissi hver hún var. Svo er pabbi hennar Jón Gnarr, frægu fólki finnst örugglega óþægilegt að allir séu að fá eiginhandaáritun, ó þú ert frábær leikari/grínisti eða eitthvað þannig, en Bjarni dýrkaði hann, og hann var bara mjög góður við hann og gaf honum fóstbræðraspólur og áritaðan tvíhöfðadisk. Ég vil
bara þakka öllum sem að hafa verið góð við
hann og bara að halda því áfram.
![]() Íris Björk skrifaði þessa frásögn. Bróðir minn heitir Atli Már og er 10 ára. Hann er með Downs-heilkenni. Hann er í sama skóla og ég og er mjög duglegur að læra. Krakkarnir í bekknum hans eru mjög góðir við hann og hjálpa honum oft. Mér finnst hann stundum skemmtilegur og stundum frekur og leiðinlegur, en samt þykir mér mjög vænt um hann. --------------------------------------------------------- |