Frú Ráðhildur
Leikir
Brandarar

BRANDARAR
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Það var einu sinni Hafnfirðingur sem henti sér í gólfið og hitti ekki.
---------------------------------------------------------

Það var einu sinni Hafnfirðingur sem var að fikta í naflanum á sér og þá duttu af honum báðar rasskinnarnar.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ljóskan fór á hárgreiðslustofu í klippingu. Hún settist í stólinn og svo kom klipparinn og sá að hún var með heyrnartól á hausnum. Hann gat ekki klippt hana svoleiðis svo hann tók af henni heyrnartólin og þá hneig hún niður á gólfið. Klipparinn varð voða hissa og setti heyrnartólin á sig og heyrði "Anda inn, anda út, anda inn, anda út, ..."
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hafiði heyrt um Hafnfirðinginn sem hljóp alltaf út þegar voru þrumur og eldingar og brosti upp í himininn. Hann hélt að Guð væri að taka mynd af sér.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ljóskan fór til læknis og sagði "læknir, mér er illa allstaðar!". Læknirinn bað hann að sýna sér hvar henni væri illt og hún benti með puttanum á sig alla "á, á, hér, hér og hér og hér...". Þá skoðaði læknirinn puttann sem hún benti með og sagði "þú ert puttabrotin".
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Ljóskan fór til læknisins sem sagði henni að hún væri ófrísk og hún spurði: "Á ég það?"
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

Hvað tekur langan tíma fyrir Hafnfirðing að þvo kjallaraglugga?
12 klukkutíma -
1 klukkutíma að þrífa gluggann og 11 klukkutíma að grafa holuna fyrir stigann.

------------------------------------------------------------------------------------------------------------------

ÝMISLEGT
eldra efni
Hér munum við safna saman ýmsu efni. Hér munu birtast eldri viðburði og svo er það hún Ráðhildur okkar.

Fleira frá Ráðhildi
Fleiri bréf frá frúnni.

Leikir
Ýmsir leikir sem við lærum í smiðjunni.

brandarar
Nokkrir góðir en kanski ekki fyrir yngri en 8 ára