         
Blöðruleikurinn.
Þessi leikur er einn sá vinsælasti á námskeiðum
hjá okkur.
Hann virkar þannig:
Í leikinn þarf um 10 uppblásnar blöðrur,
2 borð, tvær teiknibólur og 4 eða fleiri leikmenn.
Skipt er í tvö lið og höfðingjar valdir. Best
er að staðsetja leikinn í tómum gangi og eru borðin
sett við endan sitt hvoru megin og á bak við þau
standa höfðingjarnir. Í miðjunni á milli
borðanna eru svo liðin tvö.
Leikurinn hefst með að blöðru er hent upp í
loftið í miðju leiksvæðisins og markmið
leiksins er að koma henni til höfðingja síns sem
heldur á teiknibólu og á að sprengja blöðruna.
Hann má ekki teigja sig yfir borðið heldur verður
blaðran að ná alveg til hans áður en hann
getur sprengt hana. Þegar annað hvort liðið hefur
sprengt blöðru fær það eitt stig og önnur
blaðra er sett í leikinn. Þegar svo allar blöðrurnar
hafa verið sprengdar eru þeir sigurvegarar sem sprent hafa
flestar blöðrur.
Við
bendum á að það er best að ekki sé verulegur
hæðarmunur á þeim sem leika. Ef pláss er
lítið er hætta á að í hita leiksins
verði þeir sem lægstir eru fyrir smá hnjaski þegar
þeir stærri gleyma sér því alltaf er horft
upp til að fylgja blöðrunni í þessum leik.
Það má auðvita alveg vera með fleiri eða
færri blöðrur og ef borð eru ekki til staðar er
hægt að merkja með treflum á gólfið eða
öðru tiltæku en þá er betra að skipa dómara
sem fylgist með að ekki sé stigið yfir strikið.
Einnig er enginn vandi að leika þennan leik úti þá
örfáu daga sem logn er.
Góða skemmtun.
|