


| Frú Ráðhildur Leikir Brandarar |
|


Kæra
Ráðhildur,
Ég vildi óska þess að ég þekkti einhvern
sem á systur með vandamál eins og systir mín. Ég
á vini, en þeir skilja ekki hvernig er að eiga systur sem
fær flog og verður svo veik að hún þarf oft að
fara á spítala. Vinir mínir skilja ekki heldur það
góða við hana. Ég var mjög stoltur þegar
systir mín sem er 6 ára lærði loksins að fara
á klósettið. Eru til krakkar sem vita hvernig það
er að eiga systur eins og systur mína?
Eru til fleiri sem eiga svona systkini?
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Vonandi getur þú hjálpað mér. Eldri systir mín
er fötluð. Vinir mínir spyrja mig stundum hvað sé
að h enni og hvernig hún varð svona. Kennarinn minn spurði
mig líka að þessu einu sinni. Ég veit aldrei hvernig
ég á að útskýra fötlun systur minnar
fyrir öðrum. Getur þú leiðbeint mér?
Orðlaus
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Bróðir minn kemst upp með allt. Hann þarf aldrei að
gera neitt heima bara af því að hann er fatlaður. Ég
veit að hann getur ýmsilegt, en foreldrar mínir láta
hann aldrei gera neitt.
Ein svikin
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Mér líður eins og Öskubusku. Foreldrar mínir
láta mig passa yngri systkini mín, sérstaklega yngri
systur mína sem er einhverf. Ég eyði líka hverjum
laugardegi við að hjálpa mömmu að hreinsa húsið.
Ég fæ aldrei að gera neitt sem mig langar til. Finnst þér
þetta réttlátt?
Ein sem spyr. Hvar er Álfadísin mín?
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Stundum líður mér eins og ég sé ósynilegur.
Bróðir minn er með Down heilkenni. Það þarf
mikið að sinna honum og virðist það taka allan tíma
foreldra minna. Einu skiptin sem foreldrar mínir veita mér athygli
er þegar ég lendi í vandræðum og það
þarf að skamma mig. Hvernig get ég komið þeim í
skilning um að þaug eiga tvö börn en ekki bara eitt?
Ósýnilegi maðurinn
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Bróðir minn fer alltaf inn í herbergið mitt í
leyfisleysi og rústar öllu. Mamma lætur hann aldrei taka
til eftir sig, segir að hann kunni ekki að laga til. Hún segist
ekki hafa tíma til að gera það sjálf. Hvað
get ég gert við bróður minn og hvað á ég
að gera út af herberginu mínu.
Ein sem vill hafa fínt í kringum sig.
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------
Kæra
Ráðhildur,
Ég er öskureið. Núna rétt áðan truflaði
systir mín mig í fimmta skiptið við heimanámið.
Hún lætur mig aldrei í friði. Sérstaklega þegar
vinir mínir eru hjá mér. Hjálp!!!
Ein sem er öskureið
------------------------------------------------------------------------------------------------------------------